Deigkörfur

8 eggjahvítur
200 gr hveiti
150 gr sykur
125 gr smjör (bráðið)

Egg og sykur hrært saman, hveitinu hrært út í og að lokum bræddu smjörinu. Deiginu er smurt út á teflonmottu eða smurða hveitistráða plötu. Stærð hverrar köku er smekksatriði. Bakað við 220°C þar til kökurnar eru ornar gullbrúnar. Kökurnar eru mótaðar um leið og þær eru teknar út úr ofninum, annars er ill viðráðanlegt að móta það. Deigkörfurnar eru síðan fylltar ís og ávöxtum eftir smekk.