Crème brulée (f. sex)

8 eggjarauður
1/3 bolli sykur
1 teskeið vanilluextrakt
sykur fyrir sykurhúð

Aðferð:
Ofninn er hitaður í 150°. Eggjarauðurnar eru hrærðar saman og sykrinum blandað við. Þá er rjómanum blandað saman við og vanillunni. Búðingnum er hellt í eldföst mót og þau sett á stórt fat. Vatni er hellt á fatið þar til það nær búðingsskálum að hálfu. Búðingurinn er svo bakaður í u.þ.b. klukkustund. Þá er búðingurinn kældur í ísskáp í a.m.k. 2 klst. Rétt áður en borið er fram skal strá sykri yfir skálarnar og hann brenndur með t.d. þar til gerðum brennara eða í ofni. Ofninn er þá stilltur á grill og skálunum stungið inn rétt nógu lengi til að sykurinn bráðni en ekki það lengi að búðingurinn hitni. Creme brulée er í raun sáraeinfalt í framreiðslu, nema hvað sykurhúðin getur reynst vandasöm sé notast við ofn. Í stað vanillu má nota önnur bragðefni, t.d. límónu.