Cointreau – truffla

 

200 g smjör (mjúkt)

500 g hvítt súkkulaði

Súkkulaðispænir

Cointreau líkjör u.þ.b. 50 g (eða eftir smekk)

Mýkið smjörið í hrærivél og bræðið súkkulaðið í örbylgju eða yfir vatnsbaði. Látið það ekki hitna of mikið. Hellið súkkulaðinu varlega saman við smjörið og gætið þess að skafa niður í köntunum svo ekki myndist kekkir. Þegar blandan er orðin jöfn setjið þið líkjörinn út í og hrærið blönduna þar til hún er orðin hæfilega þykk. Setjið í sprautupoka með sléttri tjullu og sprautið á bökunarplötu með smjörpappír. Leyfið molunum að stífna í ca 1 -2 klst. Dýfið því næst í hvítt súkkulaði og veltið upp úr súkkulaðispæni. Þessa uppskrift er auðvelt að leika sér með og gera önnur tilbrigði. Til dæmis með að skipta um súkkulaði og líkjör eða sleppa honum. Til dæmis má nota 250 g dökkt súkkulaði og 300 g rjómasúkkulaði. Svo má velta molunum upp úr mismunandi muldum hnetum. Tildæmis ristuðum heslihnetum. Muldum ristuðum möndlum, pistasíum eða ristuðum kókós. Þegar heilar möndlur og heslihnetur eru ristaðar er best að rista þær á lágum hita, 10°c, þar til þær eru fallega gylltar og ekki hráar í miðju þegar þær eru muldar.