Vanilludesert með bláberjum og jarðaberjum

1 pakki Bastogne Kandisbiscuit & Kanel frá LU
500 g vanilluskyr frá KEA
500 g rjómi
100 g smjör
1 askja fersk jarðaber
1 askja fersk bláber

Myljið kanilkökurnar mélinu smærra í matvinnsluvél (múlið þær eins og fagmennirnir segja). Bræðið smjör í potti við vægan hita. Hrærið það svo saman við kanilkökumulninginn. Þjappið kanilsmjörblöndunni jafnt í botninn á kökumótinu. Gott er að nota hringlaga kökumót með háum brúnum. Stífþeytið rjómann og blandið vanillusykrinum varlega saman við hann með sleif. Hellið skyrblöndunni yfir kanilkökubotninn og jafnið yfirborðið. Látið standa í frysti í þrjár til fjórar klukkustundir. Skreytið með jarðaberjum og bláberjum og berið á borð fyrir sælkerana.