Trifli Helenu fögru
12 - 15 fingurkexkökur
2 - 3 msk amarettólíkjör (eða annar líkjör)
1 stór dós niðursoðnar perur
100 g gott dökt súkkulaði
250 g mascarponeostur, mjúkur
3 msk flórsykur
1 1/4 dl rjómi, léttreyttur
2 msk pistasíuhnetur eða möndluflögur
Raðið fingurkexinu í botninn á skál og vætið í þeim með líkjörnum og 3 - 4
msk af perusafa. Skerið perurnar í báta og raðið ofan á. Setjið 1/2 dl af
perusafanum í pott og brjótið súkkulaðið út í, hitið við lágan hita og hrærið
stöðugt þar til súkkulaðið er bráðnað. Hellið því þá yfir perurnar.
Setjið mascaraponeost og flórsykur í hrærivélaskál og hrærið vel saman, bætið
léttþeyttum rjómanum út í og þynnið örlítið með perusafa. Hellið yfir
súkkulaðið, skreytið með söxuðum pistasíuhnetum eða ristuðum möndluflögum og
kælið.