Trifflið hennar ömmu
240 g makkarónur
1 dl sérrí
1/2 dl vatn (u.þ.b.)
4 matarlímsblöð
2 eggjarauður
2 msk sykur
2 eggjahvítur
2,5 dl rjómi
100 g súkkulaði, til skrauts (t.d. opal súkkulaði, litlu kringlóttu)
2,5 dl rjómi, þeyttur og borinn fram með trifflinu
Myljið makkarónurnar og setjið í skál. Hellið u.þ.b. 1/2 dl vatn og 1/2 dl sérrí
yfir þær og blandið vel saman.
Gætið þess þó að setja ekki of mikinn vökva í kökurnar, þær eiga að vera
gegnblautar en ekki gegnsósa.
Setjið blönduna á fallega desertskál og best er að láta hana bíða yfir nótt en
það er ekki nauðsynlegt.
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í u.m.þ.b. 10 mínútur og hellið vatninu
síðan af.
Þeytið eggjarauður og sykur þar til blandan er orðin létt og ljós. Stífþeytið
því næst eggjahvíturnar (sér í skál) og þeytið fyrri rjómapelann (sér í skál)
Hellið vatninu af matarlíminu og hitið það varlega yfir vatnsbaði eða í
örbylgjuofni. Kælið með tæplega hálfum desílítra af sérrí þar til blandan er
orðin 37°C
Blandið því næst ofurvarlega saman með sleif þeyttum rjómanum og eggjablöndunni.
Hrærið matarlímsblöndunni varlega útí en hrærið stöðugt svo ekki myndist kekkir.
Blandið eggjahvítunum varlega saman við. Setjið blönduna ofna á
makkarónukökurnar í desertskálinni og kælið.
Saxið suðusúkkulaðið smátt niður og stráið yfir trifflið, eða stingið ópal
hringjunum til skrauts.
Berið fram með þeyttum rjóma