Súkkulaðimús, marengs, kirsuberjalögur og "crumble"
Sá besti jólin 2007


Súkkulaðimús
300 ml rjómi
250 g súkkulaði
100 g eggjarauður
145 g sykur
200 ml mjólk
2 blöð matarlím

Hitið upp mjólk, og sláið sykri og eggjarauðum saman. Heitri mjólkinni hellt yfir. Því næst er lagað enskt krem: Hitið á vægum hita þar til þykknar.
Matarlím lagt í bleyti þegar límið er orðið lint er það sett út í enska kremið. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða örbylgjuofni, og blandið saman við enska kremið.

Marengs
150 g eggjahvítur
140 g sykur
140 g flórsykur

Þeytið eggjahvítur hægt og hellið hvítum sykri rólega saman við. Þegar blandan er orðin þykk og stíf, sigtið þá flórsykur út í. Bakið við 120°C í 20 mínútur.

Kirsuberjalögur
200 g kirsuberjalögur
50 ml rauðvín
50 g sykur
safi úr 1/2 sítrónu
mynta
150 g vatn
3 fíkjur

Blandið öllu nema fíkjunum saman í pott og sjóðið. Hellið svo yfir skornar fíkjurnar og geymið.

Crumble
100 g smjör
100 g púðursykur
100 g hveiti
100 g heslihnetur

vanilluís

Skerið smjörið niður í teninga og hafið kalt. Blandið öllum þurrefnunum saman og svo smjöri. Blandið þessu saman með höndunum. Hér má einni nota matvinnsluvél með spaða. Myljið niðurskornar hnetur saman við og kælið vel.
Bakið á bökunarplötu með smjörpappír eða í viðeigandi formi þar til deigið er fullbakað.

Raðið þessu svo öllu smekklega saman í desertskálar