Súkkulaðimousse
250 gr suðusúkkulaði
3 egg
1 dl þeyttur rjómi
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði,látið kólna en ekki stífna. Hrærið eggjarauðum
einni í einu saman við, stífþeytið eggjahvíturnar og blandið varlega saman við
og síðast stífþeyttur rjóminn.
Sett í 4-6 desertskálar/glös. Kælt.