Súkkulaðikaka með pistasíum og bláberjaís

Súkkulaðikaka (hráefni):
300 g súkkulaði dökkt
25 g smjör
1 msk. hunang
5 eggjarauður
1 msk. kakóduft
200 ml ólífuolía
1 stk. matarlím
20 ml volgt vatn
5 eggjahvítur

Aðferð:
Hitið súkkulaði í skál í vatnsbaði, bætið smjöri og hunangi og blandið vel saman. Leggið matarlímið
í volgt vatnið og leysið upp. Pískið eggjarauður og hellið olíu hægt saman við þar til þykknar vel. Bætið kakódufti við og
vatni. Blandið súkkulaðiblöndu saman við og að lokum eggjahvítum. Setjið í form og kælið.

Pistasíur:
100 g pistasíur
40 g sykur

Aðferð:
Ristið hneturnar á pönnu og bætið sykri á og brúnið. Passið að brenna ekki sykurinn.

Bláberjaís og bláberjasósa:
1 dós vanilluís
100 g bláberjasulta
100 g fersk bláber

Aðferð:
Blandið vanilluís við ¾ af sultunni og ¾ af fersku bláberjunum. Hitið upp afgang af sultunni og bætið
afgangi af fersku bláberjunum að lokum út í og notið sem sósu.