Súkkulaðifreisting
3 dl rjómi
250 g suðusúkkulaði
3 eggjarauður
1/3 tsk. salt
2 msk. smjör
1 msk. kaffilíkjör eða 1 tsk. vanilludropar
Hitið rjómann í potti við vægan hita. Takið af hitanum og hrærið súkkulaðið
saman við þar til það bráðnar. Hrærið vel. Hrærið eggjarauðurnar og saltið vel
saman. Bætið ca. 1 dl af súkkulaðiblöndunni varlega saman við eggjarauðurnar.
Hellið síðan blöndunni í pottinn og hrærið mjög vel. Hrærið svo smjörinu og
líkjörnum eða vanilludropum saman við. Hellið í litlar skálar eða bolla og kælið
í ísskáp í amk 2 tíma. Stundum set ég nokkur ber, t.d. rifsber, bláber eða
skorin jarðarber, í botninn á skálunum áður en súkkulaðiblöndunni er hellt yfir.
Þá koma berin á óvart í lok súkkulaðifreistingarinnar
Rósa Guðbjartsdóttir
