Súkkulaði pavlova Sonju


6 eggjahvítur
300 g sykur
1-2 tsk. vínedik
3 msk. kakó, sigtað
50 g dökkt súkkulaði
½ l rjómi
hindber eða önnur ber, eða ávaxtablanda Stífþeytið eggjahvítur. Bætið sykri smám saman út í, einni matskeið í einu og þeytið á meðan. Bætið vínediki og sigtuðu kakói út í og hrærið
varlega með sleif. Setjið á bökunarpappír í form. Dreifið söxuðu súkkulaði yfir. Bakið við 150° C í eina klukkustund og korter. Skreytið með þeyttum rjóma og berjum að vild.