Súkkulaði Créme Brulée
Himneskur eftirréttur sem bókstaflega bráðnar í munni
Hráefni:
2½ dl rjómi
200 g suðusúkkulaði
1 dl nýmjólk
4 msk flórsykur
50 g sykur
5 stk eggjarauður
Aðferð :
Setjið í pott rjóma, mjólk og sykur. Látið suðuna koma upp og kælið lítillega.
Hellið því næst vökvanum rólega yfir eggjarauðurnar og súkkulaðið og hrærið
varlega (ekki þeyta). Skiptið blöndunni í fjórar litlar skálar eða bolla. Bakið
í vatnsbaði við 110 °C í 20 - 30 mínútur eða þar til kremið hefur stífnað. Takið
út og kælið. Setjið þunnt lag af demerara sykri ofan á hvert bruleé og brennið
annað hvort með gasbrennara eða undir grilli.
Framreiðsla :
Borið fram eitt og sér, með ferskum berjum eða jafnvel ís. Allt eftir smekk.
Fyrir 4