Sælkera-marengsfjall
Uppskrift:
6 eggjahvítur og rauður
300 g sykur
2 tsk. edik
7,5 dl rjómi
450 g jarðarber, 300 g bláber, 100 g flórsykur, 150 g súkkulaði,
40 g smjör.
þeyta eggjahvíturnar, edikið og sykurinn saman eins og venja er með marengs.
Takið blönduna úr skálinni með matskeið og bý til litlar marengs-smákökur og set
á bökunarpappír. Það fer svo inn í ofn og bakast í klukkutíma við 135 gráður. Á
meðan þeytið rjómann og setjið út í hann jarðarberin og bláberin en skilja þarf
smá eftir til skeytingar. Eftir að marengskökurnar eru tilbúnar raðið
þeim á kökudisk þannig að þær myndi botn. Látið svo rjóma yfir og næsta
lag er aðeins minna af marengs og þaðan koll af kolli svo endar þetta í
toppköku. Kremið er svo búið til með því að þeyta saman eggjarauðum og
flórsykri. Súkkulaði og smjör er brætt saman og síðan blandað við eggjablönduna.
Að lokum er kreminu hellt yfir fjallið.