Sælkera-bomba (af Kjörísvefnum)

1 pakki makkarónukökur
3-4 msk sherry
½ ltr rjómi
1 bakki jarðarber
1 dós Romm fromage frá Kjörís
100 gr dökkur súkkulaði spænir

Látið Fromage standa við stofuhita í 3 klst. Myljið makkarónurnar í skál og vætið í með sherryinu. Jafnið kexblöndunni í botninn á skál. Dreifið helmingnum af súkkulaðispæninum yfir. Jarðarberin skorin í fernt og raðað ofan á súkkulaðið. Rjóminn þeyttur og u.þ.b. helmingurinn settur ofan á jarðarberin. ¾ af Romm fromage settur þar ofan á og síðan afgangurinn af rjómanum. Skreytt með jarðarberjum og súkkulaði spænum.