Rfsfrómas

4 egg
1 1/2 dl sykur
4 dl rjómi
8 matarlímsplötur
2 dl rifsber

Bleytið matarlímið í vatni í 5 mínútur. Kreistið plöturnar og leysið upp eina og eina í um það bil 1/2 dl af sjóðandi vatni. Hrærið þar til allt er uppleyst.
Þeytið egg og sykur. Þeytið rjómann og hrærið varlega saman við eggjamassann. Þá eru berin hrærð saman við. Loks er matarlíminu bætt út í. Hellið blöndunni í sex fallegar skálar og geymið í ísskáp. Þegar eftirrétturinn er borinn fram er hann skreyttur með rifsberjum og ferskri sítrónumelössu eða myntu.