Rauðvínssoðnar perur með kremi bakarans, kanilkexi og
vanilluís
Perur
4 stk perur
600 ml rauðvín
200 ml appelsínusafi
1/2 tsk kanilstöng
125 g sykur
2 stk negulnaglar
1 msk pistasíur
Sjóðið upp á vökvanum ásamt öllu kryddi. Leggið þá perurnar út í og sjóðið við
væga suðu í u.þ.b. 35 mínútur. Kælið vökvann, takið um 1 dl af honum og sjóðið
niður í síróp. Saxið pistasíur, penslið sírópi á perurnar og stráið pistasíum
yfir.
Krem bakarans
568 g mjólk
144 g sykur
108 g hveiti
72 g smjör
5 stk eggjarauður
1/2 vanillustöng
sjóðið upp á mjólk og sykri. Eggjarauður settar út í, því næst er hveiti sigtað
saman við og þurrkryddum blandað við í lokin.
Kanilkex
Hnífoddur af engifer
Hnífsoddur af anís
Hnífsoddur af kardimommum
175 g hveiti
100 g smjör
50 g sykur
30 g kornflex
30 g eggjahvíta
10 g kanill
Sykri og smjöri blandað saman og því næst afgangnum blandað saman við í hrærivél
en gætið þess að nota ekki þeytarana, heldur spaða eða krók. Borið fram með
vanilluís