Perur með haframylsnu og hunangsskyri
fyrir 4
3 perur (eða epli eða rabarbari)
100 g sykur
250 g vatn
safi úr 1 sítrónu
Skrælið og kjarnhreinsið perurnar og skerið í litla bita. Sjóðið saman vatn,
sykur og sítrónusafa. Bætið perum við suðu og látið krauma í eina mínútu. Látið
kólna.
Haframylsna
100 g hveiti
100 g púðursykur
120 g hafragrjón
100 g stofuheitt smjör
70 g möndluflögur
Blandið saman hveiti, púðursykri og höfrum. Bætið smjöri við og hnoðið með
fingrunum. Möndlum bætt út í. Bakað í ofni við 160° C í um það bil 12-15
mínútur.
Hunangsskyr
100 ml þeyttur rjómi
120 g skyr
1-2 matskeiðar hunang
Hrærið hunangi og skyri vel saman og blandið rólega við rjómann. Raðið volgum
perum og haframylsnu á disk ásamt ísköldu hunangsskyrinu og berið strax fram.