Peru- og karamellugóðgæti (af Kjörísvefnum)

2 perur
100 gr makkarónukökur
2 msk súkkulaðispænir
6 msk karamellusósa
1 líter Mjúkís
Afhýðið og kjarnhreinsið perurnar og skerið í smá bita. Myljið makkarónukökurnar og blandið saman í skál ásamt súkkulaðispæninum og karamellusósunni. Setjið plast yfir og látið samlagast í kæli í u.þ.b. klukkutíma. Skiptið í 4 skálar og setjið 1-2 kúlur af Mjúkís ofaná.