Mokkafrómas
8 matarlímsblöð
1 dl sterkt kaffi
75 gr suðusúkkulaði
3 egg+ 1 eggjarauða
75 gr sykur
1 msk neskaffi
25 gr mjólkur/rjóma súkkulaði til skrauts
½ l rjómi
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í ca 10 mín. Bræðið súkkulaðið í
heitu kaffinu, kreistið vatnið úr matarlíminu og bræðið það sömuleiðis í
kaffinu. Skiljið eggin og þeytið 3 eggjarauður með sykrinum, stífþeytið
eggjahvítur í annarri skál,hrærið einni eggjarauðu og neskaffinu saman. Blandið
öllu saman við kaffiblönduna (kælda) og að síðustu stífþeyttum rjómanum.
Sett í skál og skreytt með rifnu súkkulaði og rjóma.