Lagskipt súkkulaðimús með jarðaberjum og kívi
Glæsilegur eftirréttur sem gaman er að búa til. Þeim sem vilja fara einföldu leiðina er alveg óhætt að bera músina fram með ávaxtamaukinu til hliðar.


200 g Síríus Konsum 70% súkkulaði
50 g smjör, mjúkt
3 egg, aðskilin
100 ml rjómi
25 g flórsykur
3 kíví
200 g jarðarber
ristaðar heslihnetur til skreytingar
Bræðið súkkulaðið ásamt smjörinu í vatnsbaði.
Aðskilið eggin og stífþeytið eggjahvíturnar.
Blandið eggjarauðum, rjóma og flórsykri saman í annarri skál. Hrærið eggjarauðublönduna saman við brædda súkkulaðið. Blandið stífþeyttu eggjahvítunum varlega saman við
súkkulaðið með sleikju. Látið músina kólna aðeins. Afhýðið kívíið og maukið það. Maukið einnig jarðarberin. Takið 6 há og mjó glös og setjið 3 tsk. af jarðarberjamauki
á botninn á hverju glasi; notið teskeið með löngu skafti. Setjið súkkulaðimúsina í sprautupoka með löngum stút og sprautið svolitlu af henni í hvert glas. Setjið 3 tsk. af
kívímauki ofan á súkkulaðimúsina og sprautið síðan öðru lagi af súkkulaðimús ofan á. Skreytið glösin með hnetum. Raðið glösunum á bakka og og kælið músina í minnst 2
klukkustundir.