Kartöflubláberjafreisting

Hráefni:
200 g kartöflur (rifnar á rifjárni)
100 g döðlur
200 g bláber
2 dl Rice Crispies
2 dl speltflögur (eða hafrar)
100 g smjör.
50 g 70% súkkulaði
100 g súkkulaðirúsínur (má sleppa)

Aðferð:
Sjóðið kartöflurnar og döðlurnar í potti í 5 mínútur, setjið í matvinnsluvél og maukið. Bræðið smjörið og súkkulaðið í potti, bætið kartöflu-döðlublöndunni, Rice Crispies, og speltflögunum út í, setjið að lokum bláberin og súkkulaðirúsínurnar saman við. Setjið í eldfast mót og bakið í 15 mínútur við 180 gráður. Berið fram með rjóma eða ís , ávöxtum og súkkulaðisósunni.