Karamellurönd með rjómaís og núggatrjóma
af ms vefnum
150 g sykur
5 egg
20 g sykur
3 dl mjólk
3 dl rjómi
1 tsk vanillusykur
Brúnið sykur á pönnu og hellið í botninn á hringformi, veltið nokkrum sinnum.
Stífþeytið egg og sykur. Hitið mjólk og rjóma að suðu og látið rjúka. Hellið
blöndunni saman við eggjahræruna og bætið vanillusykri út í. Sigtið varlega og
hellið í formið ofan á brúnaða sykurinn. Bindið blautan smjörpappír yfir mótið
og bakið í vatnsbaði við 170-180°C í 40-50 mín. eða þar til röndin er þétt
viðkomu
Látið kólna í forminu. Hvolfið yfir á fat og berið fram með rjómaís og
núggatrjóma.
Núggatrjómi:
3 dl rjómi
150 g sykur
1 dl heslihnetur
Brúnið sykur á pönnu ljósbrúnan og bætið söxuðum hnetum saman við. Hellið
blöndunni á bökunarpappír og látið kólna í 2-3 klst. Þeytið rjóma og myljið
hnetusykurinn saman við.
