Kaldar perur (af Nóavefnum)

1 dós perur
1/2 l rjómi
20-30 stk. makkarónukökur
200 g suðu-súkkulaði (konsum)
Hnetur að vild
Leggið makkarónurnar á fat og vætið með perusafanum.
Skerið perurnar niður og
raðið þeim ofan á.
Stráið hluta af súkkulaðinu yfir.
Þeytið rjómann og
bragðbætið með ögn af vanillu og sykri.
Smyrjið þeyttum rjómanum yfir perurnar
og stráið afgangnum af súkkulaðinu yfir.
Látið standa í kæli í a.m.k. 1 klst.
áður en borið er fram.