Kaffidrukkinn ís (gelato affogato al caffé)

1 espressobolli nýlagað
2-3 stk fingurkökur (ladyfingers)
3 kúlur vanilluís

Búið til kaffið og kælið aðeins. Brjótið kökur í tvennt og setjið í ísbikar úr gleri á fæti eða eftirréttaskálar að vild. Komið ískúlum fyrir ofan á kökunum og hellið kaffinu yfir. Berið réttinn fram strax áður en ísinn bráðnar. Eins má sleppa kökunum og hella kaffinu beint yfir ískúlur, jafnvel í stórum kaffibolla.