Jóladagsbomba Maríu Níelsar

150 g makkarónur
½ l rjómi
púðursykurmarengs
ber/ávextir
krem
Kremjið makkarónur (um það bil 150 g) í botn á móti eða skál, bleytið upp með ananassafa. Setjið ½ lítra af þeyttum rjóma ofan á. Brytjið púðursykurmarengs ofan
í rjómann. Hægt er að kaupa púðursykurmarengs eða baka (þeytið vel 4 eggjahvítur og 2 dl púðursykur og bakið í 40 mínútur við 100-120° C). Setjið jarðarber, bláber,
vínber, banana og fleira ofan á. Hellið kremi óreglulega yfir.

Krem
4 eggjarauður
50 g flórsykur
80 g súkkulaði (suðusúkkulaði eða með appelsínubragði)
40 g smjör
Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman. Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði og hrærið varlega út í hina blönduna. Í staðinn fyrir krem má eins bræða 100 g
súkkulaði og hella yfir.