Jógúrtbúðingur með gómsætri ávaxtasósu (Handa sex til sjö
Hráefni:
4 blöð matarlím
2–2½ dl rjómi
2½ dl léttjógúrt með því bragðefni
sem ykkur finnst best (eða
léttsúrmjólk)
2 msk. sykur
1 tsk. vanillusykur ef notuð er léttsúrmjólk/jógúrt með vanillubragði (annars
ekki víst að vanillubragð passi)
½ dl sjóðandi vatn
Aðferð:
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið rjómann. Þeytið
jógúrtina/léttsúrmjólkina með sykrinum og vanillunni ef hún er notuð. Hellið
kalda vatninu af matarlíminu og bræðið það með sjóðheitu vatninu. Látið mesta
hitann rjúka úr. Hellið matarlíminu út í jógúrtina/ léttsúrmjólkina. Bætið
þeyttum rjómanum út í blönduna. Hellið blöndunni í kringlótt form. Kælið hana í
að minnsta kosti 2–3 klukkustundir þannig að hún stífni. Berið fram með
jarðarberjasósu og skreytið með ferskum berjum. Þessi uppskrift getur ekki
misheppnast ef þess er gætt að matarlímið sé heitt en ekki hálfvolgt þegar það
er sett út jógúrtina og er mun fljótlegri í matreiðslu en venjulegur frómas.
Uppskriftin er fengin úr gamalli matreiðslubók og er alltaf jafngóð.
Hátíðarútgáfa:
Merjið 1 öskju af jarðarberjum (jafnvel meira) og sykrið eftir smekk. Hitið og
berið fram heitt með köldum jógúrtbúðingnum.
Hráefni:
Ávaxtasósa úr ferskum ávöxtum
2 dl jarðarber (kíví, hindber eða mangó) um það bil 1 msk. strásykur
Aðferð:
Hreinsið berin (eða flysjið kívíin/ mangóið), setjið í matvinnsluvél og maukið.
Þynnið með ávaxtasafa ef með þarf. Sykrið og berið fram.
