Ís með karamellu-mokka íssósu
Ís
3 egg
6 msk flórsykur
1 tsk vanillusykur
½ l rjómi
18 Nóa konfekt flöskur (eru seldar sér)
Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn saman þar til það er orðið létt og ljóst.
Bætið við vanillusykrinum út í. Þeytið eggjahvíturnar. Þeytið rjómann. Myljið
flöskurnar í matvinnsluvél. Blandið öllu varlega saman. Frystið.
Karamellu-mokka íssósa
½ bolli púðursykur
½ bolli síróp
3 msk smjör
1 dl rjómi
1 tsk skyndikaffi leyst upp í
ögn af sjóðandi vatni
Hitið púðursykurinn, sírópið og smjörið í potti og látið malla í 10-15 mín. Hrærið í á meðan. Takið af hellunni og setjið óþeyttan rjómann og skyndikaffið út í. Hrærið saman og berið sósuna fram volga með ísnum