Hrísgrjónabúðingur með ávöxtum (hrísgrjón keisaraynjunnar)

Hrísgrjón
75 gr skoluð hrísgrjón
5 dl mjólk
2 gr salt



Hindberjahlaup
1 ½ dl hindberjasafi
5 gr matarlím
½ dl grenadin



Ávextir
50 gr smátt skornir soðnir ávextir lagðir í líkjör
50 gr sykur
1 dl vatn
3 eggjarauður
vanilla
4 gr matarlím
2 ½ dl rjómi

AÐFERÐ

Skoluð hrísgrjón eru sett yfir til suðu í vatni, þegar þau sjóða er þeim hellt á sigti. Suðan látin koma upp á mjólkinni, hún söltuð og hrísgrjónunum bætt út í. Grjónin soðin þar til þau eru meyr og hafa soðið í sig mjólkina. Látið grjónin kólna.

Leggið matarlímið í bleyti í ca 5 mín. Hitið saftina í ca 37°C, kreistið vatnið af matarlíminu og leysið það upp í saftinni. Kælið saftina með grenadin og hellið í form þannig að myndi rönd og látið hlaupa.

Vatn, sykur og vanillustöng soðið í ca. 2 mín. Eggjarauðurnar þeyttar yfir gufu eða í sjóðandi heitri hrærivélarskál, þeytið sjóðandi heitum sykurleginum saman við og þeytið í þykkan massa. Leggið matarlímið í bleyti og kreistið vatnið af, leysið upp í örlitlu vatni og hrærið saman við eggjahræruna. Blandið köldum hrísgrjónunum saman við. Þeytið rjómann og blandið honum saman við í lokin er ávöxtunum hrært saman við. Hellið blöndunni í formið ofan á hindberjahlaupið, setjið í kæli og látið standa í kæli í ca. 4 kls.