HINDBERJA- OG ANANASRJÓMATVENNA

 

HINDBERJARJÓMI

225 g frosin hindber

 

3 msk. sykur

300 ml rjómi

200 g hvítt Toblerone, saxað

Stráið sykrinum yfir hindberin og látið þau þiðna. Pressið safann úr berjunum í gegnum sigti.
Þeytið rjómann og blandið berjablöndunni ásamt Tobleroninu varlega saman við og kælið.

 

ANANASRJÓMI

250 g ananaskurl

3 msk. flórsykur

300 ml rjómi

Sigtið safann af ananasnum, þeytið rjómann og blandið öllu varlega saman.
4 msk. hindberjasulta fersk hindber og myntulauf til skrauts
Sprautið hindberjarjómanum
í botninn á fallegum glösum og því næst ananasrjómanum. Sprautið hindberjarjómanum og
ananasrjómanum til skiptis þar til rjóminn er uppurinn. Setjið 1 matskeið af hindberjasultu
á toppinn og skreytið með ferskum hindberjum og myntulaufum

 

Hindberja og ananastjómatvenna