Heitir bananar með karamellusósu (Sæunn & Denni)
6 bananar, afhýddir og skornir
í tvennt eftir endilöngu.
1 bolli púðursykur
6 msk smjör
1 msk soðið vatn
vanilluís
1/2 bolli hunangsristaðar hnetur eða ristaðar möndluflögu.
Hitið ofninn í 180°C. Setjið bananana í eldfast mót með skornu hliðina upp.
Blandið púðursykri og smjöri saman í pott og hitið á vægum hita þangað til
blandan er bráðin. Hækkið hitann, blandið soðna vatninu út í og sjóðið í 3
mínútur. Hellið sósunni yfir bananahelmingana. Bakið bananana í 15 mínútur eða
þar til karamellan sýður. Berið bananana fram strax með ískúlu og hnetum stráð
yfir.