SÚKKULAÐIKAKA
3 egg
3 dl sykur
1 1/2 dl hveiti
1 1/2 tsk. vanilludropar (má nota
vanillusykur)
4 msk. dökkt kakó
100 g dökkt súkkulaði
110 g smjör
Þeytið vel saman sykri og eggjum í hrærivél svo úr verði þykk freyðandi blanda.
Blandið hveiti, vanilludropum og kakói saman við. Bræðið súkkulaðið og bætið því
út í. Bræðið loks smjörið og blandið saman við. Bakið í hringlaga formi við 150
gráðu hita (án blásturs) í um það bil 25 til 30 mín. Berið kökuna fram heita með
ís og berjasósu.alveg
ekta
súkkulaðikaka
HEIMATILBÚINN ÍS
1/2 l rjómi
6 egg
6 msk. sykur
Þeytið rjómann og setjið hann í skál. Þeytið egg og sykur vel saman. Blandið
þeyttum rjóma og eggjablöndunni varlega saman, setjið í álform og inn í frysti.
JARÐARBERJASÓSA
3 bollar jarðarber (mega vera hvaða ber sem er)
2 1/2 bolli sykur
Saxið jarðarberin smátt og setjið í pott. Hellið sykrinum yfir og hitið í
pottinum. Hrærið vel allan tímann svo úr verði þykk og sæt sósa. Skerið sneið af
heitri köku, setjið ísinn til hliðar og hellið síðan sósunni yfir.
