Ferskir ávextir með kremi (Crema pasticciera)

Ferskir ávextir, t.d. jarðaber
2 bollar mjólk
1.5 tsk vanilludropar
6 eggjarauður
1 msk sykur
4 msk hveiti

Hitið mjólkina að suðu, bætið við vanillu og takið af hitanum. Hrærið eggin saman við sykurinn þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið hveitinu rólega út í. setjið nú heita mjólkina í eggjahræruna. Hellið öllu í pott og hitið, en passið að láta ekki sjóða. Berið fram með ferskum ávöxtum til dæmis jarðaberjum.