Estragonbrûlée

Eftirréttur fyrir 4

1 lítri rjómi

150 g sykur

350 g eggjarauður

1/2 búnt ferskt estragon

Aðferð:

Sjóðið upp á rjómanum, blandið eggjarauðum og sykri saman, hellið heitum rjómanum yfir og hrærið.

Hrærið áfram með sleikju yfir vatnsbaði þar til blandan þykknar.

Setjið að lokum ferskt estragon út í og maukið með töfrasprota. Sigtið og setjið í skálar.

Bakið í skálum með plastfilmu yfir og á gufu við 100°C í 20 mínútur.