Epli- og möndlu soufflé (fyrir fjóra)

3 meðalstór epli, skræld, kjarninn tekinn úr og skorið í litla munnbita
1/4  bolli vatn
3 msk hrásykur (mæli með Rapadura hrásykri)
1/2 tsk möndludropar
5 eggjahvítur (hendið rauðunum, þær eru hvort eð er bara slæm fita)
1/4 bolli saxaðar möndlur og léttristaðar er þið viljið

Ofn I 180°C Setjið eplin og vatn í pott og látið sjóða. Lækkið hitann töluvert og setjið lokið á og hrærið öðru hvoru í 10 mínútur (setjið mottu eða eitthvað undir pottinn sem þolir hita) Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við kalda eplablönduna. Setjið blönduna síðan í leirmál eða bolla sem mega fara í ofn. Eitt mál fyrir hvern einstakling. Bakið í 15 mínútur eða þar til souffléið er orðið þétt í sér og brúnleitt að ofan. Stráið söxuðum möndlunum yfir áður en borið er fram heitt og freistandi úr ofninum.