Eplagóðgæti
4 meðalstór epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í bita
1 ¼ dl sykur
1 tsk kanill
1 ½ dl hveiti
1/2 tsk salt
1 ¼ dl mulið kornflex
55 gr smjör
Eplin sett í vel smurt eldfast mót. Helmingnum af sykrinum og öllum kanilnum
stráð yfir. Hveiti, salti og afgangnum af sykrinum hrært saman ásamt kornflexi.
Dreift yfir eplin. Bakað við 200 gráðu hita í ca 30 mín. Berið fram með ís eða
þeyttum rjóma.