Epladesert
5 epli
2 dl sykur
100 g súkkulaði, smátt skorið
1 dl haframjöl
1 dl kókosmjöl
100 g smjör, brætt
Afhýðið eplin, skerið í bita og sjóðið þau með sykri (1/2 dl) þar til þau eru
orðin aðeins mýkri. Setjið eplin í botninn á eldföstu móti og stráið súkkulaðinu
yfir. Stráið síðan haframjöli, kókosmjöli og því sem eftir er af sykrinum yfir.
Bræðið smjör og hellið yfir allt. Bakið í ofni við 175°C í 20 mín.