Döðluflögur og súkkulaðihúðuð jarðarber
Döðluflögur
100 g spelt eða heilhveitiflögur
50 g döðlur, saxaðar
50 g 70% súkkulaði
50 g kókosolía
50 ml hlynsíróp
Blandið öllu saman, búið til klumpa og kælið.
Súkkulaðihúðuð jarðarber
1 lítil ferna sojarjómi
2 msk agavesíróp
175 g 70% súkkulaði
Látið suðu koma upp á sojarjóma og sírópi. Hellið yfir saxað súkkulaði og hrærið
saman. Dýfið jarðarberjum í blönduna og kælið
