Dásamleg eftirrétta-pavlova

Franskur marengs

150 g eggjahvítur

140 g strásykur

140 g flórsykur

Þeytið eggjahvíturnar á meðalhraða og bætið strásykrinum smátt og smátt út í. Sigtið flórsykurinn og blandið honum varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í rjómasprautu

og sprautið tveimur stuttum, þykkum röndum þétt saman á bökunarpappír. Notið breiðasta stútinn. Sigtið flórsykur yfir og bakið við 120 til 150°C í 20 mínútur. Miðjan á að vera mjúk

þegar kakan er tekin úr ofninum. Kælið örlítið og frystið.

Vanillurjómakrem

500 g rjómi

100 g hvítt súkkulaði

4 g matarlím (2 blöð).

1 vanillustöng

Leggið matarlímið í kalt vatn. Hellið rjómanum í pott. Skafið innan úr vanillustönginni og setjið út í rjómann. Hitið að suðu og bætið matarlíminu saman við. Hellið blöndunni í smáum skömtum yfir súkkulaðið og hrærið á milli. Gott er að hræra blönduna í lokin með töfrasprota. Hellið í skál og setjið filmu yfir. Kælið að minnsta kosti í 3 tíma. Áður en eftirrétturinn er borinn fram er kremið þeytt þar til það verður mjúkt. Búið til kúlu með skeið og setjið á marengsinn. Gott er að bera kökuna fram með ávaxtasósu og berjum.

Ávaxtasósa

100 g hindber

50 g sykur

Hitið berin og sykurinn saman. Maukið berin.

Smá fróðleikur um pavlovu

Pavlovan var fyrst bökuð í Ástralíu eða á Nýja Sjálandi til heiðurs rússnesku ballettdansmeynni Önnu Pavlovu.

Pavlovan hefur í mörg ár verið þrætuepli á milli Ástrala og Nýsjálendinga. Báðar þjóðirnar vilja eigna sér heiðurinn af að hafa bakað kökuna fyrstar.

Pavlovan er vinsæll þjóðréttur í báðum löndunum.