Créme Caramell
Fyrir fjóra

Búðingurinn
200 ml rjómi
800 ml mjólk
¼ stk. vanillustöng
120 g sykur
4 stk. egg
4 stk. eggjarauður

Rjóminn, mjólkin, vanillan og sykurinn blönduð saman og suðan látin koma upp. Eggin og rauðurnar eru slegnar saman. Hluti af mjólkinni bætt útí eggin og hrært í á meðan, Síðan er þeirri blöndu hellt yfir í mjólkina og hrært í á meðan. Passa skal að hafa mjólkina ekki of heita þegar byrjað er að blanda þessu saman.

Karamellan
100 ml vatn
200 g sykur

Blandið sykrinum og vatninu saman og sjóðið þar til vatnið er horfið og sykurinn er orðinn gullin brúnn. Þá er sett botnfylli af karamellu í bökunarform og látið kólna smá (ekki í kæli).
Því næst er búðingsblöndunni helt yfir og sett í vatnsbað í ofn á 140°c í 45-50 mín. Sett í kæli og látið kólna. Skorið meðfram forminu og hvolft á bakka.