Karamellubúðingur Créme caramel
Karamella úr ½ dl af vatni og 100 gr sykri
5 dl mjólk
1 Vanillustöng klofin langsum eða 1 ½ tsk vanilludropar
60 gr sykur
2 egg
2 eggjarauður
1 l frauðskál eða hitaþolið form
Lagið karamelluna og húðið skálina með henni. Hitið ofninn í 175°C og undirbúið vatnsbað. Setjið mjólkina í pott og látið suðuna koma upp (ef Vanillustöng er notuð er hún höfð með). Takið pottinn af hellunni og setjið lok yfir og látið standa í 10-15 mín. Bætið sykrinum saman við og hrærið í. Þeytið egg og eggjarauður, hellið mjólkinni út í og kælið svolítið. Ef notaðir eru Vanilludropar er þeim bætt saman við núna. Síið búninginn og hellið honum í hjúpaða skálina. Bakið búðinginn í heitu vatnsbaði í 40-50 mín. Eða þar til að hann er hlaupinn og loðir ekki við hníf sem stungið er í miðjuna. Rennið hníf meðfram búðingsbrúninni og hvolvið honum á disk, karamellan er þá búin að mynda sósu með búðingnum.