Bruschetta með jarðarberjum

Þessi einfaldi réttur er ótrúlega góður hvort sem er á helgarmorgnum eða sem eftirréttur.

4 brauðsneiðar

6 matskeiðar ljósbrúnn sykur

1 teskeið rifinn sítrónubörkur

2 teskeiðar sítrónusafi

3 bollar jarðarber

4 matskeiðar mascarpone

Ristið brauðið báðum megin á pönnu eða í brauðrist. Setjið sykur, sítrónubörk og sítrónusafa í pott og hitið þar til sykurinn er bráðinn og blandan sýður. Bætið jarðarberjunum út í og hrærið þar til safinn fer að leka úr þeim. Setjið eina matskeið af mascarpone-osti á hverja brauðsneið og berjablönduna ofan á.