Bríe ostur með aðalbláberjum og súkkulaðihjúpuðum hvítlauk

1 msk sykur

4 dl aðalbláber fryst

8-12 hvítlauksrif eftir smekk

1 msk smjör

60% dökkt súkkulaði

Brie ostur

 

Blandið sykrinum saman við aðalbláberin. Afhýðið hvítlauksrifin og setjið í skál með 1 msk af smjöri. Bakið hvítlauksrifin í 150°C í 20 mín. Bakið 60% dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði. Takið hvítlaukinn úr ofninum og setjið hann á eldhúspappír og þerrið smjörið af honum. Hjúpið hvítlauksrifin í súkkulaðinu. Takið þau upp úr súkkulaðinu með gaffli og setjið á smjörpappír sem búið er að bera matarolíu á. Ágætt er að stinga hvítlauknum inn í ísskáp í um 20 mín. Setjið 1 sneið af bríe osti (stærð eftir smekk) á disk. Sáldrið aðalbláberjunum yfir ostinn. Setjið 2-3 hvítlauksrif þar ofan á. Þetta er ótrúlega magnaður eftirréttur sem kemur ánægjulega á óvart. Sérstaklega hvað súkkulaði , hvítlaukur og ostur passa vel saman.