Blaut súkkulaðikaka með kirsuberjasósu, kanilís og hnetubakstri

 

Blaut súkkulaðikaka

375 g súkkulaði (að eigin vali)
225 g smjör
8 egg
300 g sykur
125 g hveiti

Súkkulaði og smjör brætt saman, egg og sykur þeytt upp, beiti sigtað út í.
Bakað í eldföstu móti eða teflonformi við 160-170°C í 7-8 mínútur.

 

Kanilís:

8 eggjarauður
250 g sykur
1 l rjómi
½ mjólk
2 kanilstangir

Eggjarauður og sykur þeytt létt saman.
Sjóðið mjólk og rjóma með kanilstangirnar út í vökvanum. Eggjunum og sykrinum bætt varlega út í og hitað upp í 67 gráður. Bægt er að frysta ísinn eða hræra hann í ísvél.

 

Kirsuberjasýróp:
100 g sykur
22 g vatn
½ sítróna
1 krukka af kirsuberjasultu
1 tsk stjörnuanís
100 g púrtvín

Öllu blandað saman í pott og soðið í 5-8 mín.

 

Hnetumulningur:
140 g smjör
140 g púðursykur
140 g hveiti
140 g heslihnetur (muldar í duft, má nota aðrar hnetur)

Allt sett í hrærivél. Smjörið á að vera kalt. Bakist við 150°C í 10-12 mínútur. Látið kólna.