Bláberjabaka Áslaugar
1½ dl hveiti
1 dl sykur
3 dl gróft haframjöl
½ tsk. matarsódi
150 g bráðið smjör
250–300 g bláber (fersk eða frosin)
½ dl kókosmjöl
½–1 dl möndluflögur
Blandið hveiti, sykri, haframjöli og matarsóda saman í skál. Setjið bráðið smjör
út í og hrærið vel saman með sleif. Deig á að vera sundurlaust. Setjið 2/3 af
deigi í smurt eld fast form (stærð um það bil 20 sinnum 30 sentímetrar), dreifið
úr því en þjappið ekki. Setjið bláber yfir. Setjið kókos mjöl og möndluflögur
saman við afgang af deigi og dreifið yfir bláberin. Bakið í miðjum ofni við
180°C í 15 til 20 mínútur. Berið fram með þeyttum rjóma. Ekki þarf að láta
frosin ber þiðna
