Bláber með sítrónurjóma

Blanda af vanilluskyri og fitulausum rjómaosti er dásamleg og sérstaklega góð ofan á fersk ber.

110 grömm rjómaostur

¾ bolli vanilluskyr

1 teskeið hunang

2 teskeiðar rifinn sítrónubörkur

2 bollar fersk bláber

Blandið saman rjómaosti, vanilluskyri og hunangi þar til létt og rjómakennt.
Hrærið sítrónuberkinum saman við. Setjið berin í fallegar skálar ásamt skyrblöndunni.