Bananar í rommblandaðri sykurbráð

Bananar í rommblandaðri sykurbráð svíkja engan þrátt fyrir að vera afar fljótlegur eftirréttur.

2 matskeiðar brúnn sykur

1 teskeið smjör

½ teskeið canolaolía

2 matskeiðar dökkt romm

1 teskeið limesafi

1/8 teskeið kanill

2 bananar skornir langsum til helminga

¼ bolli ís

Hrærið brúnum sykri, smjöri og olíu saman í potti við meðalhita þar til blandan sýður.
Bætið rommi, limesafa og kanil út í og hrærið þar til blandan er orðin örlítið þykkari.
Setjið banana út í og berið svo fram með góðum vanilluís.