Heimagerður ís

 

Heimagerðan ís gera margir Íslendingar sem eftirrétt. Margir kvarta sáran undan því að ná aldrei ísnum nægilega mjúkum og að í honum myndist ískristallar við geymslu í frysti. Ráðið við þessu er að nota fleiri egg og meiri rjóma í ísblönduna á móti mjólk.

 

Baileys-ís

6 eggjarauður

1 bolli púðursykur

1/2 dl Baileys

200-300 g Valencia m/núggati og hnetum

1/2 l rjómi

Blandað saman og sett í frysti. (Eggjahvíturnar má einnig nota, þá verður ísinn meiri og léttari).

 

Ljúffeng konfektsósa

200 g Valencia súkkulaði m/ núggati og hnetum

100 g suðusúkkulaði

3 dl rjómi

Hráefnið er sett í pott, hrært saman á vægum hita, látið malla í 20 mín.

Þessi verður mjúkur!

24stundir/Eyþór