Ávextir og skyrsósa með mascarpone
Ávaxtagrautur með mascarponeskyrsósu
Hráefni:
75 g þurrkuð epli
75 g þurrkaðar apríkósur
50 g gráfíkjur
50 g sveskjur
50 g ljósar rúsínur
100 ml eplasafi
100 ml maltöl
200 g vanilluskyr
100 g mascarponeostur, mjúkur
1 tsk. hunang, eða eftir smekk
Aðferð:
Ávextirnir, eplasafinn og maltið sett í pott og hitað að suðu (ef ávextirnir eru
harðþurrkaðir er best að láta þá liggja í bleyti í vökvanum í nokkrar
klukkustundir). Látið malla við hægan hita undir loki í 15-20 mín útur, eða þar
til ávextirnir eru meyrir og nærri allur vökvi gufaður upp. Kælt. Skyr og
mascarponeostur hrært vel saman og bragðbætt með hunangi eftir smekk. Borið fram
með ávöxtunum.