Ávaxta brulée (af Nóavefnum)
Makkarónukökur
1/2 dós ferskjur eða aðrir ávexir
100 g rjómalíkjörsfyllt súkkulaði
2 dósir sýrður rjómi 1 lítil dós karmellujógúrt
1 1/2 -2 dl ljós púðursykur (þarf að mynda góða húð)
Raðið makkarónukökunum í eldfast mót. Brytjið ávexti og súkkulaði og látið
ofaná. Blandið saman sýrðum rjóma og jógúrt og hellið yfir ávextina. Látið bíða
í minnst 2 klst. Stráið sykrinum yfir rjómablönduna og grillið í 10 - 15 mín eða
þar til sykurinn hefur karmellast. Hægt að nota aðra ávexti, ferska eða í dós.