Ávaxtaábætir með sýrðum rjóma
1-2 dl sýrður rjómi
1-2 dl þeyttur rjómi
sykur
¼ ds ananas
1-2 appelsínur
1-2 epli
1-2 bananar
vínber
hnetur
Blandið saman sýrðum rjóma og þeyttum rjóma, bragðbætið með sykri ef vill. Skerið ávextina í jafna litla bita og skiptið þeim í ábætisskálar. Setjið rjómablönduna yfir og skreytið með vínberjum og hnetum